Prentað þriðjudaginn 9. febrúar kl. 06:35 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Á að fjármagna nýframkvæmdir í vegagerð með veggjöldum?

Já, hiklaust

Já, líklega

Veit ekki

Nei, helst ekki

Nei, alls ekki

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

   

  

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Skessuhorn, 8. febrúar 2010

Breiðafjarðarfléttan, eða "Fléttan," er samstarfsverkefni ferðaþjónustuaðila á Snæfellsnesi, í Dölum og á sunnanverðum Vestfjörðum. Fléttan er að vinna svæðisbundna vöruþróun og að uppbyggingu í fuglaskoðun á starfssvæði hennar  með aðstoð færustu sérfræðinga. Hugmyndafræðin byggir á því að með aðstoð sérfræðinga, svo sem líffræðinga, náttúrufræðinga og markaðsfræðinga verði búin til verðmæti í ferðaþjónustu sem eru stíluð inn á ákveðinn markhóp sem í þessari vinnu er hinn gríðarstórri markhópur; uglaáhugamenn.  Dagana 12. og 13. febrúar næstkomandi verður haldinn vinnufundur að Langaholti á Snæfellsnesi.

 

 

 

Skessuhorn, 8. febrúar 2010

Sex ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umferðareftirliti lögreglunnar á Akranesi í liðinni viku. Þá missti ökumaður á leið norður Vesturlandsveg stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði utan vegar. Ökumaðurinn sem var einn í bifreiðinni slasaðist og var fluttur á sjúkrahús. Að öðru leyti var vikan tiltölulega róleg hjá lögreglunni á Akranesi. 

 

 

 

 

Skessuhorn, 8. febrúar 2010

Fyrir skömmu festi Umhverfisstofnun kaup á nýjum bíl til notkunar í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Bíllinn er af gerðinni Toyota Prius og er svokallaður tvinn-bíll.  Hann er sparneytinn og notar bæði rafmagn og bensín eftir því sem hentar hverju sinni. Bíllinn er almennt álitinn með umhverfishæfari bílum og eru kaupin hugsuð sem byrjunarskref fyrir visthæfari bílaflota stofnunarinnar.  Umhverfisstofnun keypti jafnframt Volkswagen Passat bíl fyrir starfsemina í Reykjavík en sá bíll getur gengið fyrir metani eða bensíni. Þrátt fyrir þessa bíla þarf Umhverfisstofnun að nota stóra bíla í ákveðin verk víða um land svo sem yfir sumartímann í þjóðgarðinum. 

 

 

 

Skessuhorn, 8. febrúar 2010

Á fundi byggðaráðs Borgarbyggðar í síðustu viku voru skólamál til umræðu. Oddvitar meirihlutaflokkanna, Björn Bjarki Þorsteinsson Sjálfstæðisflokki og Sveinbjörn Eyjólfsson Framsóknarflokki lögðu fram bókun um skólamál sem var samþykkt samhljóða, þar sem Finnbogi Rögnvaldsson oddviti Borgarlistann fagnaði henni með sérstakri bókun. Með þessari bókun er búið að eyða óvissu um framtíð grunnskóla í sveitarfélaginu, að minnsta kosti út þetta kjörtímabil. Samkvæmt henni er fallið frá hugmyndum um lokun starfsstöðva grunnskóla. Í stað þess á að ná fram lækkun kostnaðar með því að dregið verður úr fjárveitingum til allra starfsstöðva grunnskólanna samkvæmt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Þá verður viðmiðunum um fjölda nemenda í bekkjum breytt og það hækkað, samkennsla verður aukin og stöðugildum fækkað. Varmalandsskóli og Grunnskóli Borgarfjarðar verða sameinaðir undir eina stjórn og fimmti bekkur á Hvanneyri verður fluttur að Kleppjárnsreykjum.

 

 

Skessuhorn, 8. febrúar 2010

Föstudaginn 12. febrúar nk. mun Háskólinn á Bifröst standa fyrir ráðstefnu í Iðnó í Reykjavíku. Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst, mun setja ráðstefnuna klukkan 13:00 og stendur dagskráin til 17:30. Ráðstefnan er opin og allir velkomnir – ekkert þátttökugjald. Þar munu fræðimenn úr hugvísindum, félagsvísindum og lögfræði velta upp þeirri spurningu hvort og þá hverju Búsáhaldabyltingin hefur skilað og jafnframt hvort að líta megi á hana sem birtingarmynd breyttra stjórnmála á Íslandi. Sex erindi verða flutt og opnar umræður í kjölfar hvers erindis. Í lok dagsins verða pallborðsumræður þar sem velt verður upp spurningum um efni erindanna. Fundarstjóri verður Eva Heiða Önnudóttir, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst.

 

 

 

Skessuhorn, 8. febrúar 2010

F.v. Guðjón, Kjartan, Gísli G og Gísli E.
Á Herrakvöldinu ÍA sem fram fór síðasta föstudagskvöld voru þeir Kjartan S. Finnsson og Gísli Einarsson heiðraðir sérstaklega fyrir framlag þeirra í þágu Knattspyrnufélags ÍA. Gefum Gísla Gíslasyni formanni knattspyrnufélags ÍA orðið:

“Gísli Einarsson hefur í gegnum árin ævinlega verið fús til þess að leggja félaginu lið á viðburðum þess og nánast verið fastagestur á herrakvöldum félagsins.  Kjartan S. Finnsson þekkja allir stuðningsmenn KFÍA, en hann hefur á liðnum áratugum fylgt ÍA liðinu hvort heldur er innanlands eða utan.  Kjartan er fyrirmyndar stuðningsmaður félagsins og ódrepandi í áhuga sínum á knattspyrnu og félaginu.  Kjartani kom viðurkenningin nokkuð á óvart, en öðrum sem til þekkja fannst hins vegar tímabært að félagið veiti kappanum lítinn þakklætisvott fyrir stuðninginn.” 

 

 

 

 
Vefpóstur
Á döfinni
Sun
Mán
Þri
Mið
Fim
Fös
Lau
31



21


12

Framundan
Stykkishólmur: Í dag
Grundarfjörður: Í dag
kl. 14:00
Auðarskóli: Á morgun
Grundarfjörður: Á morgun
kl. 18:00
Akranes: 11. 2 2010
Akranes: 11. 2 2010
Borgarbyggð: 11. 2 2010
Grundarfjörður: 11. 2 2010
kl. 10:00
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 06:20  A 6  5°C
Akrafjall 06:10  ASA 3  6°C
Hafnarfjall 06:20  ASA 6  7°C
Vatnaleið 06:00  A 0  3°C
Hraunsmúli 06:20  A 6  5°C
Fróðárheiði 06:00  ASA 9  1°C
Brattabr. 06:20  SSV 1  2°C
Holtav.h. 06:20  S 4  -1°C
Laxárdalsh. 06:20  SA 3  1°C
Svínad. 06:20  SA 0  1°C
 
Stafholtsey 21:00  NA 3  -4°C
Gufuskálar 06:00  A 2  5°C
Ólafsvík 06:00  S 7  5°C
Grundarfj. 06:00  SA 5  6°C
Bláfeldur 06:00  A 4  5°C
Stykkish. 06:00  ANA 4  4°C
Hafnarmelar 06:00  ASA 6  6°C
Reykhólar 06:00  NA 4  3°C
Ásgarður 03:00  N 1  3°C
Hvanneyri 06:00  ANA 1  -1°C
Þyrill 06:00  ANA 3  6°C
Fíflholt 06:00  ANA 4  4°C
 
Klink-Útsala í Garnbúðinni
Rýmum fyrir nýjum lager. Fyrstir koma fyrstir fá. 150,-kr 250,-kr 350,kr-... www.garnbudin.is eða að Jörundarholti 9, Akranesi. Opið virka daga frá 10 - 18. Eftir samkomulagi um helgar í s: 868-2750.
 
Hús til leigu í Borgarnesi
200 fm. hús til leigu í Borgarnesi. Á viðráðanlegu verði. Staðsett niðri í bæ. Endilega hafið samband í síma 862-1399 eða 499-0420. Hlökkum til að heyra frá ykkur.
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
Ólína Þorvarðardóttir: Villufáni LÍÚ
Hrönn Ríkharðsdóttir: Úr einu í annað...
Halldór Jónsson: Til sóknar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent